26.02.14 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Connor Wickham til Leeds á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds hefur fengið framherjann Connor Wickham á láni frá Sunderland.
Miklar vonir voru bundnar við Wickham þegar hann kom til Sunderland frá Ipswich árið 2011.
Wickham hefur þó ekki náð að standa undir þeim væntingum en hann var í láni hjá Sheffield Wednesday á dögunum.

Þar skoraði hann átta mörk í ellefu leikjum áður en Sunderland kallaði hann til baka.
Wickham kom við sögu í tveimur leikjum hjá Sunderland nýlega en hann mun nú klára tímabilið með Leeds sem er í ellefta sæti í Championship deildinni.

Heimild: Sky