26.02.14 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Srdjan Rajkovic í KA (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson, Srdjan Rajkovic, Fannar Hafsteinsson og Srdjan Tufegdzic.

Mynd: Heimasíða KA

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA hefur fengið markvörðinn Srdjan Rajkovic til liðs við sig frá Þór en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Rajkovic er 38 ára gamall en hann lék með Fjarðabyggð um áraraðir áður en hann gekk til liðs við Þórsara haustið 2010.
Sandor Matus hefur varið mark KA undanfarin ár en hann gekk í vetur til liðs við Þór. Hinn ungi og efnilegi Fannar Hafsteinsson hefur staðið vaktina í marki KA í vetur og Bjarni Jóhannsson þjálfari liðsins segir að markmiðið hafi alltaf verið að hann verði aðalmarkvörður liðsins í sumar.
,,Það er frábært að vera búinn að fá Rajko. Markmannsmálin voru mikið til umræðu í haust og það sem við eigum U19 ára landsliðsmarkmanninn Fannar Hafsteins. Það hefur alltaf verið markmið okkar að Fannar yrði markmaður númer eitt á þessu keppnistímabili,\" sagði Bjarni við heimasíðu KA.
,,Við vildum auðvitað halda Sandor og að hann myndi bakka Fannar upp í markmannsmálum. Það var þó ekki komin sá tímapunktur í ferli Sandors að verða varamarkmaður og því ákvað hann að fara yfir í Þór.\"
,,Við stóðum þá uppi með tvo fína markmenn, Fannar og Steinþór Má en Steinþór ákvað að hætta af persónulegum ástæðum. Þess vegna lentum við í smá vandræðum með markmannsmálin sem nú er komin lausn á.\"
,,Ég tel þetta vera góða lausn þar sem Rakjo er reynslumikill markmaður og drengur góður. Er búinn að vera Íslandi lengi og er búsettur á Akureyri. Rajko verður góður stuðningur við Fannar og mun gera hann enn betri. Það er því mjög gott að hafa góða markmenn innan raða KA.\"
Bjarni segir að það séu spennandi tímar framundan hjá KA en margir efnilegir leikmenn eru í röðum félagsins.
,,Eins og sjá má á KA núna er markmiðið að byggja upp nýtt lið og gefa ungum leikmönnum tækifæri. Því það er óvenju stór hópur ungra leikmanna KA,\" sagði Bjarni.

Heimild: Heimasíða KA