Fotbolti.net
26.02.16 - 11:20
Magnús Már Einarsson

Fjarðabyggð semur við fyrrum leikmann Chievo (Staðfest)

Fjarðabyggð semur við fyrrum leikmann Chievo (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Fjarðabyggð hefur samið við varnarmanninn Oumaro Coulibaly en hann var áður á mála hjá Chievo í Serie A á Ítalíu.
Coulibaly er 22 ára gamall en hann hefur verið á mála hjá Chievo síðan árið 2010.

Coulibaly hefur þó ekki náð að spila í Serie A en undanfarin ár hefur hann farið til Paganese, Lumezzane og Sorrento á láni í ítölsku neðri deildunum.

Fjarðabyggð er að safna liði fyrir átökin í 1. deildinni í sumar en miklar breytingar hafa orðið á hópnum í vetur.

Komnir:
Haraldur Þór Guðmundsson frá Leikni F.
José Alberto Djaló Embaló frá Rapid Búkarest
Marteinn Þór Pálmason frá Leikni F.
Oumaro Coulibaly frá Chievo á Ítalíu
Sverrir Mar Smárason Kári
Sævar Örn Harðarson frá Elliða
Víglundur Páll Einarsson frá Einherja

Farnir:
Bjarni Mark Antonsson í KA (Var á láni)
Brynjar Jónasson í Þrótt
Carl Oscar Anderson
Emil Stefánsson í FH (Var á láni)
Elvar Ingi Vignisson í ÍBV
Hafþór Þrastarson í Fram
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson í Leikni R. (Var á láni frá FH)
Kile Kennedy til Ástralíu
Nik Chamberlain í Aftureldingu
Viðar Þór Sigurðsson í KR (Var á láni)
Viktor Örn Guðmundsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.