Fotbolti.net
26.02.16 - 17:04
Elvar Geir Magnússon

Infantino nýr forseti FIFA (Staðfest)

„Fótboltinn hefur farið í gegnum erfiða tíma en þeim dögum er lokið. Við munum endurreisa ímynd FIFA.\"

„Fótboltinn hefur farið í gegnum erfiða tíma en þeim dögum er lokið. Við munum endurreisa ímynd FIFA.\"

Canon

Mynd: Getty Images

Gianni Infantino hefur verið kjörinn nýr forseti FIFA og tekur við embættinu af Sepp Blatter sem dæmdur var í bann frá afskiptum af fótbolta vegna spillingamála.

Forsetakosningarnar fóru í tvær umferðir en í umferð tvö skiptu margir sem höfðu áður kosið Prins Ali og Champagne yfir til Infantino.

Infantino hefur verið framkvæmdastjóri UEFA en hann hafði stuðning nær allra aðildarsambanda frá Evrópu, þar á meðal frá Íslandi.
Úrslitin úr 2. umferð:
Infantino 115
Salman sjeik 88
Prins Ali 4
Champagne 0

Sjeikinn Salman bin Ebrahim al-Khalifa frá Bahrain þótti sigurstranglegastur fyrir kosningarnar í dag en ljóst er að hann fékk ekki eins mörg atkvæði frá Afríku og hann hafði stólað á.

Infantino var í skýjunum þegar úrslitin lágu ljós fyrir.

„Ég get ekki lýst tilfinningum mínum á þessari stundu. Ég fór í gegnum magnað ferðalag sem gerði það að verkum að ég fékk að kynnast mörgu stórkostlegu fólki sem lifir fyrir fótboltann, fólk sem á það skilið að FIFA sé mjög virt,\" segir Infantino.

„Allir munu styðja okkur í því sem við ætlum að gera. Allir verða stoltir af því sem við munum gera. Ég vil vinna með ykkur að því að ná stöðugleika á nýjum tímum þar sem við getum haft fótboltann á aðalsviðinu.\"

„Fótboltinn hefur farið í gegnum erfiða tíma en þeim dögum er lokið. Við munum endurreisa ímynd FIFA,\" segir Infantino.

Gianni Infantino
Aldur: 45
Þjóðerni: Ítalía/Sviss
Starfsár í fótboltaheiminum: 15
Starf: Framkvæmdastjóri UEFA.
Fyrrum staða: Ráðinn til UEFA 2000 sem lögmaður og tók að sér framkvæmdastjórn í sérverkefnum.
Ummæli: „Það þarf að endurskipuleggja FIFA þannig að fyrst og fremst séu fótboltatengd málefni í forgrunni. Ég vil leiða sambandið þannig að það sé kyndilberi vinsælustu íþróttar heims með reisn og virðingu.\"
Salman sjeik beið lægri hlut.

Salman sjeik beið lægri hlut.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.