Fotbolti.net
26.02.16 - 13:31
Magnús Már Einarsson

Kristinn Þór Rósbergsson í Magna (Staðfest)

Kristinn Þór Rósbergsson í Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Framherjinn Kristinn Þór Rósbergsson hefur gengið til liðs við Magna Grenivík í 2. deild.

Hinn 23 ára gamli Kristinn kemur til Magna frá uppeldisfélagi sínu Þór.

Kristinn hefur spilað með Magna í Kjarnafæðismótinu og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Í fyrra skoraði Kristinn þrjú mörk í tólf leikjum í 1. deildinni og Borgunarbikarnum með Þór.

Hann skoraði einnig eitt mark í fjórum leikjum í Pepsi-deildinni með Þór sumarið 2014.

Árið 2013 var Kristinn á láni hjá KF og Dalvík/Reyni.

Hann er ekki eini leikmaðurinn sem Magni hefur fengið í sínar raðir undanfarna daga. Ingvar Gylfason og Sveinn Þór Steingrímsson eru báðir komnir til félagsins en þeir hjálpuðu Þrótti Vogum að fara upp í 3. deildina í fyrra.

Þá er Pálmar Magnússon kominn í Magna á nýjan leik en hann spilaði með Hömrunum í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.