Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. febrúar 2020 22:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aaron Ramsey: Höfum trú á okkur sjálfum
Aaron Ramsey.
Aaron Ramsey.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey kom inn á sem varamaður fyrir Miralem Pjanic á 62. mínútu þegar Juventus tapaði 1-0 gegn Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Leikurinn í kvöld var fyrri leikur liðanna og fór hann fram í Frakklandi. Ramsey hefur trú á að Juventus geti snúið einvíginu við heima í Tórínó.

„Við vissum að þetta yrði erfiður staður að koma á," sagði Ramsey í viðtali eftir leik.

„Þeir eru með nokkra frábæra leikmenn. Við reyndum allt sem við gátum til að brjóta þá á bak aftur, en það tókst bara ekki. Við erum enn inn í þessu einvígi, það er mikið eftir."

„Við höfum trú á okkur sjálfum. Með stuðningsmennina á bak við okkur þá getum við komist áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner