26.02.22 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fram fær bandarískan framherja (Staðfest)


Mynd: Fram


Mynd: Fram
Fram er búið að semja við bandaríska framherjann Jessie Ray, 24 ára, sem var markahæst þrjú ár í röð hjá Seattle University í bandaríska háskólaboltanum.
Jessie er fjölhæfur framherji og gæti hún reynst afar mikilvæg í baráttunni í 2. deild í ár.
Jessie lék fyrir Maccabi Kishronot Madera í Ísrael og MSV Duisburg í þýsku B-deildinni áður en hún skrifaði undir hjá Fram.
Fram endaði í fjórða sæti 2. deildarinnar í fyrra og gekk ekki nógu vel í úrslitakeppninni.
