Fotbolti.net
26.02.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Magnus Egilsson til B36 (Staðfest)

Magnus Egilsson til B36 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<p>Magnus Egilsson er búinn að skrifa undir samning við B36 Tórshavn í Færeyjum eftir misheppnaða dvöl hjá Val.</p>

Magnus er miðvörður og vinstri bakvörður sem ólst upp hjá HB Tórshavn en átti leiki að baki fyrir bæði HB og B36 áður en hann flutti til Íslands.

Magnus fékk aðeins að koma við sögu í níu leikjum með Val og rann út á samningi.

Magnus segist spenntur fyrir framhaldinu með B36 og vonast til að liðið berjist um titilinn. B36 endaði í fimmta sæti á síðustu leiktíð, með 45 stig úr 27 leikjum.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.