Fotbolti.net
26.02.22 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sindri fær mikinn liðsstyrk frá Portúgal og Brasilíu (Staðfest)

Sindri fær mikinn liðsstyrk frá Portúgal og Brasilíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Sindri

Kvennaboltinn

Sindri, sem endaði um miðja deild í 2. deild kvenna í fyrra, er búinn að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi tímabil.

Félagið var að semja við fjóra erlenda leikmenn, þrjár eru nýjar en Hornfirðingar þekkja hana Millí sem var að endurnýja samninginn við Sindra.

Jovana Milinkovic er í lykilhlutverki í varnarlínu Sindra og mun spila þriðja tímabilið í röð með Sindra í sumar.

Filipa Mendes er þá nýkomin til félagsins, hún er 28 ára gömul og spilar sem vinstri bakvörður og mun leika við hlið Millí í varnarlínunni. Filipa verður mikill liðsstyrkur enda á hún 41 leik að baki með Gil Vicente sem leikur í efstu deild í Portúgal. Filipa tekur vinkonu með sér frá Gil Vicente.

Leandra Pereira fylgir með í pakkadílnum en hún er 24 ára gömul og leikur sem miðjumaður. Leandra er afar fjölhæf og getur spilað í öllum stöðum á miðjunni. Hún á 104 leiki að baki í efstu deild í Portúgal auk þess að eiga 37 leiki fyrir yngri landslið Portúgals.

Maria Macedo, kölluð Malu, er 21 árs sóknarmiðjumaður frá Brasilíu. Malu lék með Dodge City háskólanum í Bandaríkjunum eftir að hafa komið upp í gegnum akademíu Atletico Mineiro í heimalandinu.

„Stjórn knattspyrnudeildar og þjálfarar meistaraflokks binda miklar vonir við komu þessara leikmanna jafnt innan vallar sem utan."

Leandra Pereira.

Leandra Pereira.

Canon

Mynd: Sindri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.