26.02.22 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þórhildur Þórhallsdóttir í Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Aftureldingar er búið að krækja í ansi góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna.
Þórhildur Þórhallsdóttir er gengin til liðs við Mosfellinga og mun styrkja hópinn sem mætir til leiks sem nýliði í Bestu deildinni.
Þórhildur býr yfir gífurlegri reynslu þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul. Hún lék 6 leiki með Blikum og 9 leiki að láni hjá Fylki í fyrra. Hún hefur einnig leikið með HK/Víkingi og Augnabliki í meistaraflokki.
Þórhildur á yfir 70 leiki að baki í meistaraflokki, í 55 deildarleikjum hefur hún skorað átta mörk. Hún á 25 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
