Fotbolti.net
26.02.22 - 16:18
Brynjar Ingi Erluson

Vanda áfram formaður KSÍ (Staðfest)

Vanda Sigurgeirsdóttir

Vanda Sigurgeirsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vanda Sigurgeirsdóttir verður áfram formaður KSÍ en hún hafði betur gegn Sævari Péturssyni í kosningu á ársþingi sambandsins í Ólafssal á Ásvöllum í dag.
Vanda tók við sem formaður af Guðna Bergssyni í október og bauð sig aftur fram fyrir ársþingið.

Hún fékk 105 atkvæði á meðan Sævar fékk 44 atkvæði og vann því öruggan sigur í dag.

Vanda var ekki viðstödd í dag þar sem hún greindist með Covid-19 stuttu fyrir ársþing, en hún verður formaður sambandsins næstu tvö árin.

„Verkefnin framundan eru mörg og spennandi, að efla knattspyrnufélögin í landinu og styrkja barna og unglingastarfið. Við þurfum að setja kraft í að bæta aðstöðuna um land allt, koma þjóðarleikvangsmálum á stað, styrkja landsliðin og efla orðspor KSÍ. Ég er ákaflega stolt af þeim grunni sem við í stjórn KSÍ og starfsfólk höfum lagt á undanförnum mánuðum til áframhaldandi uppbyggingar," sagði Vanda í byrjun mánaðar þegar hún staðfesti framboð.

Meðal markmiða á aðgerðarlista Vöndu er að auka tekjur KSÍ, ráða yfirmann fótboltamála í fullt starf á þessu ári, opna samskiptaleiðir við félögin í landinu, fjölga iðkendum, styðja þær aðgerðir að fjölga gervigrasvöllum og halda áfram að vinna að jafnrétti allra kynja.

Varðandi þjóðarleikvang er markmið hennar að komin verði niðurstaða á þessu ári um framkvæmdina.

„Það er ljóst að ákveðin pattstaða hefur verið í gangi varðandi uppbyggingu Þjóðarleikvangs. Staðan er alvarleg og mikilvægt er að grípa til aðgerða. Við hjá KSÍ ásamt KKÍ og HSÍ höfum rætt
málið við Ásmund Einar Daðason ráðherra sem tók mjög vel í okkar málflutning, sem ég er þakklát fyrir. Ég hef þó einnig skoðað fleiri möguleika og tel að við þurfum að vera opin fyrir öðrum hugmyndum. Tímasetning framkvæmda skiptir þar miklu máli,"
segir meðal annars í aðgerðalistanum.
Vanda áfram formaður KSÍ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.