Fotbolti.net
26.03.13 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Bjarki Þór Jónasson í SönderjyskE (Staðfest)

Bjarki Þór Jónasson í SönderjyskE (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bjarki Þór Jónasson, leikmaður Völsungs, hefur gengið til liðs við danska félagið SönderjyskE.

Bjarki, sem er fæddur árið 1995, gerði samning út tímabilið og ef að báðir aðilar eru sáttir eftir tímabilið liggur á borðinu áframhaldandi samningur.
Eldri bróðir Bjarka, Hallgrímur Jónasson, spilar með SönderjyskE sem og Eyjólfur Héðinsson.

Bjarki á að baki fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands og síðastliðið sumar spilaði hann sjö leiki þegar Völsungur vann aðra deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.