26.03.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Bojana Besic í Völsung (Staðfest)

Bojana Besic í leik með Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bojana Besic í leik með Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Bojana Besic er gengin til liðs við lið Völsungs sem leikur í 1. deild kvenna.
Besic kemur til félagsins frá Þór/KA sem hún hefur leikið með síðan árið 2008.
Hún var lykilmaður í liði Þór/KA frá þeim tíma og átti fast sæti í liðinu.
Hún missti af meirihluta síðasta tímabils þar sem liðið var með þrjá bandaríska leikmenn og mátti aðeins tefla fram þremur leikmönnum utan Evrópusambandsins.
Hún spilaði aðeins einn leik, gegn Keflavík í Borgunarbikarnum í lok júní.
Besic sem er Serbi lék 78 leiki fyrir Þór/KA og skoraði í þeim tíu mörk.