Fotbolti.net
26.03.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Heiða Dröfn Antonsdóttir og Teresa Rynier í FH (Staðfest)

Heiða Dröfn er gengin til liðs við FH.

Heiða Dröfn er gengin til liðs við FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
FH hefur fengið til liðs við sig tvo leikmenn fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna á næsta sumri en þær Heiða Dröfn Antonsdóttir og Teresa Marie Rynier komu til félagsins frá Svíþjóð.
Heiða Dröfn Antonsdóttir er miðjumaður sem verður 21 árs gömul á árinu.

Hún hóf feri sinn með Val sumarið 2008 og spilaði með liðinu 12 leiki áður en hún gekk til liðs við Fylki sumarið 2011.

Hjá Fylki átti hún fast sæti í liðinu það ár og fram á mitt síðasta tímabil þegar hún fluttist til Svíþjóðar.

Hún hefur spilað 41 leik með meistaraflokki og skorað í þeim eitt mark.

Teresa Rynier er sóknarsinnaður bandarískur miðjumaður.Hún lék með liðum í heimalandi sínu frá því ferill hennar hófst árið 2007 en söðlaði svo um og fór til Kvarnsvedens í Svíþjóð á síðasta ári.

Í Svíþjóð skoraði hún þrjú mörk í 20 leikjum í Norrettan deildinni. Hún verður 25 ára gömul í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.