26.03.13 - 08:53
Daníel Freyr Jónsson
Nigel Adkins tekinn við Reading (Staðfest)

Nigel Adkins.

Mynd: Getty Images

Nigel Adkins.

Mynd: Getty Images
Nigel Adkins hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Reading. Allir helstu fjölmiðlar Bretlands greina frá þessu nú í morgun.
Boðað hefur verið til blaðamannafunds hjá Reading sem hefst hvað úr hverju, en þar verður Adkins kynntur til sögunnar.
Tekur hann við liðinu af Brian McDermott, sem rekinn var frá Reading fyrir tveimur vikum eftir slakt gengi í deildinni á tímabilinu.
Adkins fær það verðuga verkefni að reyna að bjarga Reading frá falli úr úrvalsdeildinni. Liðið situr þar í 19. sæti og er sjö stigum frá öruggu sæti.
Adkins er 48 ára gamall Englendingur og stýrði hann síðast liði Southampton, en þaðan var hann rekinn í janúar síðastliðnum.