Fotbolti.net
26.03.14 - 10:32
Hafliði Breiðfjörð

Þórdís Hrönn til Älta IF (Staðfest)

Þórdís Hrönn varð bikarmeistari með Breiðabliki síðasta sumar.

Þórdís Hrönn varð bikarmeistari með Breiðabliki síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Kvennaboltinn
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir sænska félagsins Älta IF frá Breiðabliki en þetta kom fram í tilkynningu frá Kópavogsfélaginu.
Þórdís Hrönn er annar leikmaðurinn sem Älta IF fær frá Íslandi í vetur því félagið fékk Telmu Ólafsdóttur frá Val í síðasta mánuði.

Liðið er í nágrenni Stokkhólms og leikur í sænsku 1. deildinni sem er næst efsta deild þar í landi.

Þórdís sem er 21 árs gömul hefur leikið 90 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks og skorað í þeim 22 mörk.

,,Breiðablik óskar Þórdísi velfarnaðar á nýjum vettvangi og þakkar fyrir góðar stundir undanfarin ár en hún var meðal annars lykilmaður í bikarmeistaraliði Blika á síðasta sumri,\" segir í tilkynningu Breiðabliks.

Heimild: Vefur Breiðabliks

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.