26.03.14 - 22:33
Brynjar Ingi Erluson
Valdés hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona (Staðfest)

Victor Valdés kveður treyju Barcelona

Mynd: Getty Images

Victor Valdés kveður treyju Barcelona

Mynd: Getty Images
Victor Valdés, markvörður Barcelona á Spáni, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið en hann verður frá næstu sex mánuðina.
Valdés, sem er 32 ára gamall, fór meiddur af velli í kvöld á 24. mínútu gegn Celta Vigo en hann meiddist þá illa á hné og kom Jose Manuel Pinto inn í hans stað.
Ljóst er að Valdés sleit krossbönd og verður hann því frá næstu sex mánuðina en það þýðir að hann hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Börsunga.
Hann gaf það út fyrir nokkrum vikum að hann ætlaði sér ekki að framlengja við Barcelona og því leitar hann á önnur mið í sumar.
Hann á yfir 600 leiki með Barcelona og þá hefur hann unnið allt sem hægt er að vinna, bæði með Barcelona og spænska landsliðinu. Það verður því gaman að sjá hvert þessi magnaði markvörður fer í sumar.