Fotbolti.net
26.03.17 - 21:38
Kristófer Kristjánsson

Fjölnir semur við króatískan varnarmann (Staðfest)

Fjölnir var að fá liðsstyrk

Fjölnir var að fá liðsstyrk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Króatíski varnarmaðurinn Ivaca Dzolan hefur samið við Fjölni út tímabilið 2017 en félagið staðfesti þetta á Twitter.

Dzolan er 29 ára gamall miðvörður sem var síðast á mála hjá úrvalsdeildarliðinu NK Osijek síðan árið 2015.

Hann hafði fengið lítið að spila á tímabilinu og fékk sig því lausann frá NK Osijek og nú ljóst að hann mun spila í Grafarvoginum í sumar.

Fjölnir hafði verið í miðvarðarleit eftir að ljóst var að Tobias Salquist yrði ekki áfram hjá liðinu.

Króatíski varnarmaðurinn Ivaca Dzolan hefur samið við Fjölni út tímabilið 2017. Velkominn í Grafarvoginn! #Fotboltinet #ÁframFjölnir pic.twitter.com/HqCs653po8

— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) March 26, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.