26.04.16 - 18:36
Elvar Geir Magnússon
Björgvin Stefánsson í Val (Staðfest)

Markahrókurinn Björgvin Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Markahrókurinn Björgvin Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Haukar hafa sent frá sér tilkynningu um að sóknarmaðurinn Björgvin Stefánsson sé genginn í raðir Vals. Björgvin var markahæsti leikmaður 1. deildarinnar í fyrra þegar hann skoraði 20 mörk fyrir Hafnarfjarðarliðið.
Björgvin er fæddur 1994 og er uppalinn hjá Haukum en lék með BÍ/Bolungarvík á láni 2014 þar sem hann skoraði 9 mörk í 14 leikjum.
Hann er þriðji sóknarmaðurinn sem bikarmeistarar Vals fá til sín fyrir komandi tímabil. Áður hafði liðið fengið Danina Nikolaj Hansen og Rolf Toft. Nikolaj meiddist þegar Valur vann FH í leiknum í Meistarakeppni KSÍ í gær og er tæpur fyrir fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar þar sem Valur mætir Fjölni á sunnudag.
Valsmönnum var spáð fimmta sæti í spá Fótbolta.net.
Tilkynning Hauka:
Björgvin Stefánsson gengur til liðs við Val
Knattspyrnudeild Hauka og Knattspyrnudeild Vals hafa komist að samkomulagi þess efnis að Björgvin Stefánsson, leikmaður meistaraflokks Hauka, gangi til liðs við Val og spili með liðinu í Pepsi-deildinni á komandi tímabili. Björgvin fer á láni til Vals sem hefur kauprétt á honum eftir tímabilið.
Knattspyrnudeild Hauka óskar Björgvin góðs gengis á komandi sumri með Val í Pepsi-deildinni.