26.04.22 - 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Arna Eiríks í Þór/KA (Staðfest) - Brooke rifti samningi sínum

Arna Eiríksdóttir mun spila með Þór/KA í sumar

Mynd: Þór/KA

Arna Eiríksdóttir mun spila með Þór/KA á láni frá Val í sumar en þetta kemur fram í tilkynniingu frá Akureyrarliðinu í kvöld.
Arna, sem er tvítug, er uppalin í Víkingi en hún spilaði þar upp alla yngri flokka.
Hún lék í úrvalsdeildinni með HK/Víkingi tvö tímabil, 2018 og 2019, áður en hún samdi við Val fyrir tveimur árum.
Arna á að baki 60 leiki í deild- og bikar með HK/Víkingi og Val og skorað 5 mörk.
Þór/KA hefur komist að samkomulagi við Val um að fá Örnu á láni út þetta tímabil. Kemur hún inn í hópinn í stað bandaríska leikmannsins Brooke Lampe sem rifti samningi sínum við félagið.
Brooke samdi við Þór/KA um áramótin en þurfti að hverfa frá af persónulegum ástæðum og var samningi hennar slitið af hennar ósk.