Fotbolti.net
26.04.22 - 16:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Blikar lána þrjár frá sér í önnur Bestu deildar lið (Staðfest)

Birna Kristín mætt í rautt

Birna Kristín mætt í rautt

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Breiðablik hefur lánað þrjá leikmenn frá sér núna rétt áður en Besta deildin er að fara af stað. Það eru þær Birna Kristín Björnsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir og Hildur Lilja Ágústsdóttir.

Bakvörðurinn Birna Kristín er fædd árið 2004 og kom við sögu í Meistarakeppni KSÍ fyrir rúmri viku síðan þegar Breiðablik mætti Val. Hún lék átján leiki með Augnabliki í fyrra en mun leika með Aftureldingu í sumar. Hún á að baki tíu unglingalandsleiki og er fastamaður í U19 landsliðinu.
„,Ég er gríðarlega ánægður með að fá Birnu til liðs við okkur fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar. Birna er mjög efnilegur leikmaður sem styrkir leikmannahópinn okkar fyrir komandi tímabil. Það er mikil spenna í hópnum að mæta bestu liðum landsins í Bestu deildinni og við getum ekki beðið eftir leiknum gegn Selfossi á miðvikudaginn," sagði Alexander Aron Davorsson, annar af þjálfurum Aftureldingar, eftir undirskrift.

Elín Helena er fædd árið 2002 og var á láni hjá Keflavík í fyrra. Hún kom líkt og Birna við sögu í Meistarakeppni KSÍ á dögunum. Í fyrra lék hún sextán deildarleiki með Keflavík. Hún á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin.

Hildur Lilja er fædd árið 2003 og lék með Augnabliki í fyrra, kom við sögu í átján deildarleikjum. Hún á að baki fimmtán leiki fyrir yngri landsliðin og er komin með leikheimild með KR.

Loks má greina frá því að Breiðablik hefur endurheimt Heiðdísi Lillýardóttur úr láni frá Benfica. Heiðdís var í Portúgal fyrri hluta þessa árs.

Fyrsta umferð í Bestu kvenna:
þriðjudagur 26. apríl
18:00 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
19:15 Valur-Þróttur R. (Origo völlurinn)

miðvikudagur 27. apríl
17:30 Breiðablik-Þór/KA (Kópavogsvöllur)
18:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
19:15 Afturelding-Selfoss (Fagverksvöllurinn Varmá)
Elín Helena var fyrirliði Augnabliks tímabilið 2020.

Elín Helena var fyrirliði Augnabliks tímabilið 2020.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Lilja var fyrirliði Augnabliks í fyrra

Hildur Lilja var fyrirliði Augnabliks í fyrra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.