26.04.22 - 18:10
Brynjar Ingi Erluson
Þróttur fær bandarískan framherja (Staðfest)

Mynd: Þróttur R.

Mynd: Þróttur R.

Þróttur R. heldur áfram að styrkja sig fyrir sumarið en bandaríski framherjinn Murphy Agnew er komin til félagsins og mun spila með liðinu á þessari leiktíð.
Agnew hefur síðustu fimm ár spilað með Harvard-háskólanum í Bandaríkjunum þar sem hún raðaði inn mörkum ásamt því að leggja upp talsvert af mörkum fyrir liðsfélaga sína.
Hún var valin í hóp yfir 100 bestu leikmenn háskólaboltans á síðasta ári og hlotið aðrar viðurkenningar á tíma sínum í Harvard.
Agnew hefur nú gengið frá samkomulag við Þrótt um að spila með liðinu í sumar en hún er þó ekki komin með leikheimild fyrir fyrsta leik Bestu deildarinnar í kvöld gegn Val.