Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú er ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
   sun 26. apríl 2026 21:51
Brynjar Ingi Erluson
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Davíð Helgi er kominn á blað í Bestu deildinni en hér má sjá þetta stórskemmtilega fagn hans
Davíð Helgi er kominn á blað í Bestu deildinni en hér má sjá þetta stórskemmtilega fagn hans
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Davíð Helgi Aronsson skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni er Keflavík vann KA, 2-1, á Greifavellinum í kvöld. Hann fagnaði svo með skemmtilegum hætti og heldur því opnu að taka ný fögn í framtíðinni.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Keflavík

Davíð kom til nýliða Keflavíkur á láni frá Víkingi fyrir tímabilið og komið sterkur inn í liðið.

Keflvíkingar hafa þurft að bíða þolinmóðir eftir fyrsta sigrinum og var Davíð sáttur með að það hafi loksins dottið í kvöld.

„Bara mjög sáttir með þetta og gríðarlega sterkt að ná í þrjá punkta hérna á Akureyri. Geðveikt að ná fyrsta sigrinum á útivelli.“

„Mér fannst við vera með þetta í fyrri hálfleik og spilum okkar bolta, en í seinni hálfleik skoruðum við seinna markið og föllum aðeins niður. Það er partur af þessu að geta 'sufferað' líka. Við gerðum samt vel að halda þessu út,“
sagði Davíð við Fótbolta.net.

KA komst óvænt yfir með marki frá Oliver Heiðarssyni, en Davíð jafnaði metin og fagnaði því með mögnuðu fagni þar sem hann tók handahlaup og afturábakk heljarstökk.

„Þetta kom eins og sjokk. Við vorum ekki klárir í þetta, en síðan set ég eitt mark og þetta snerist við.“

„Dagur átti að stíga út gaurinn og síðan nær hann að flikka hann. Ég er klár þarna og lúri inn í boxinu. Síðan er þetta fagn sem maður er búinn að æfa, er búinn að halda þessu leyndu,“
sagði Davíð sem gæti tekið fleiri skemmtileg fögn í sumar. „Kannski kemur eitthvað nýtt. Ég er fimleikastrákur,“ sagði hann ennfremur.

Hann segir að Keflvíkingar verði að halda áfram og að sigurinn hafi ekki verið í hættu enda hafi liðið verið yfir á flestum sviðum leiksins.

„Mér fannst við vera með þetta þá og fengum góð færi í byrjun seinni hálfleiks líka. Mér fannst við alltaf vera með þetta og bara spurning um að geta 'sufferað' og við gerðum það.“

„Við erum mjög sáttir og þurfum að halda áfram. Við megum ekki fara að slaka á eitthvað því þetta verður mjög erfitt,“
sagði Davíð, en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
3.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
4.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
5.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
6.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
7.    Fram 3 1 1 1 6 - 5 +1 4
8.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
9.    KA 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
10.    Keflavík 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
Slapp
banner
banner