„Hún er bara mjög góð og frábært að vinna okkar fyrsta sigur í deildinni í ár,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir að Keflavík vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla þetta árið.
Lestu um leikinn: KA 1 - 2 Keflavík
Keflavík bar sigur úr býtum gegn KA, 2-1, á Greifavellinum, en Haraldur sagði eftir leikinn að liðið hefði vel getað farið með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn.
Hann talaði einnig um að einhverskonar ofsahræðsla hafi gripið um sig innan liðsins eftir að það tók forystu í leiknum.
„Mér fannst við byrja leikinn mjög vel. Fyrri hálfleikurinn mjög góður hjá okkur. Við sköpum okkur fullt af færum og ekkert ósanngjarnt ef við hefðum skorað þrjú mörk. Ég er óánægður með að þeir skora á okkur 1-0 og við einhvern veginn hættum ekki og héldum bara áfram, brotnum ekki við það og komum til baka verðskuldað. 1-1 í hálfleik og tölum um að fara inn í seinni hálfleikinn og halda áfram. Við vorum ofan á í flestum aðgerðum leiksins og fannst við mjög góðir þangað til við komumst í 2-1, förum í panikk-mode og ætluðum að 'suffera' út leikinn, en það hafðist. Ég hefði samt viljað sjá okkur aðeins rólegri og ekki leyfa þeim að hleypa honum upp í einhverja vitleysu. Þetta var of langur tími til þess að 'suffera',“ sagði Haraldur.
KA tók forystuna gegn gangi leiksins, en var þó ánægður með að liðið hafi ekki brotnað við það.
„Það var gegn gangi leiksins. Mér fannst við vera töluvert betri þeir og eiga tvö skot í stöng og einhver á rammann, en svona er boltinn. Ég er bara ánægður með að við höfum ekki brotnað við og það hafa haldið áfram,“ sagði Haraldur sem talaði einnig um Davíð Helga og markaskora Keflavíkur á tímabilinu.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Víkingur R. | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 3 | +3 | 7 |
| 3. Valur | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 - 3 | +3 | 6 |
| 4. Stjarnan | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 6 |
| 5. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 6. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 7. Fram | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 4 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 10. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. FH | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 7 | -4 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |























