26.05.14 - 14:10
Daníel Freyr Jónsson
Brendan Rodgers framlengir hjá Liverpool (Staðfest)

Brendan Rodgers.

Mynd: Getty Images

Brendan Rodgers.

Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers mun stýra Liverpool næstu árin eftir að hafa skrifað undir nýjan langtímasamning hjá félaginu í dag.
Ekki er gefið upp hve lengi samningurinn gildir, en fastlega var búist við að Rodgers myndi framlengja samning sinn í sumar.

,,Þetta eru gríðarleg forréttindi fyrir mig, að stýra þessum klúbbi og hafa fengið tækifæri á að halda áfram þeirri vinnu,\" sagði Rodgers eftir undirskriftina.
,,Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum okkar því þeir hafa verið þolinmóðir gagnvart mér og liðinu.\"
,,Stuðningur þeirra er mér mikilvægur. Vonandi getur þessi framlenging á samningnum gert mér kleyft að að þróa samband mitt við stuðningsmennina enn frekar því það er það sem ég vil gera.\"
Rodgers tók við Liverpool um mitt ár 2012. Undir hans stjórn lék liðið frábæran fótbolta í vetur og rétt missti af Englandsmeistaratitlinum.

Heimild: Heimasíða Liverpool