Atli Viðar Björnsson, séfræðingur í Pepsi Max-mörkunum á Stöð 2, er búinn að skrá sitt lið til leiks í Draumaliðsdeild Eyjabita.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
„Liðið mitt heitir Böðvar Böðvarsson en það er einmitt vegna þess að það reyndist mér jafn erfitt að velja þetta lið og sá drengur hefur reynst mér í gegnum tíðina," sagði Atli Viðar um lið sitt.
„Í vörninni er ég með tvo KR inga þar sem ég hef trú á að þeir haldi áfram að fá á sig fá mörk og hef trú á að þessir tveir eigi jafnvel eftir að lauma einhverjum mörkum í sumar. Logi er svo líklegur til að skila sóknarstigum ef hann missir ekki hausinn eins og eftir markið fræga í fyrra."
„Á miðjunni var Hilmar Árni auðvelt val og var fyrstur á blað hjá mér, Þorsteinn Már var farinn að skila fleiri mörkum í fyrra en oft áður og ég held að hann haldi því áfram og svo held ég að það sé pottþétt að Ágúst Hlyns komi að fleiri mörkum en í fyrra. Baldur Logi verður svo óvænt stjarna í liðinu mínu og mun spila hlutverk í FH liðinu og skila mér stigum þegar á líður."
„Frammi eru svo Óttar Magnús og Lennon, báðir munu pottþétt fara yfir 10 mörk í sumar og svo hef ég trú á að Nökkvi Þeyr muni fá tækifæri í byrjun tímabilsins í KA liðinu og ég treysti á að hann muni skila mér stigum."
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Sjá einnig:
Draumaliðsdeildin - Gunni Birgis velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Böddi löpp velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Egill Ploder velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Aron Elís velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Hjammi velur sitt lið
Athugasemdir