Joshua Kimmich, leikmaður Bayern München, er búinn að koma liðinu yfir gegn Borussia Dortmund í stórslagnum í þýsku deildinni en markið var af dýrari gerðinni.
                
                
                                    Bayern hefur verið töluvert meira með boltann í leiknum og sóknarþungi liðsins mikill.
Það skilaði marki á 44. mínútu leiksins en það gerði Kimmich með því að vippa yfir Roman Bürki í markinu.
Stórglæsilegt mark en það má sjá með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Kimmich
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
        
 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        
