26.06.13 - 19:55
Ívan Guðjón Baldursson
Isco kominn til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid, staðfesti komu Isco til félagsins frá Malaga í beinni útsendingu hjá útvarpsstöðinni RNE.
Perez tilkynnti ráðningu Carlo Ancelotti sem aðalþjálfara og Zinedine Zidane sem aðstoðarþjálfara fyrr í dag en nú hefur hann einnig staðfest komu Isco.

,,Það hefur náðst samkomulag við félagið og Isco, hann mun spila fyrir Real Madrid, hann á bara eftir að standast læknisskoðun,\" sagði Perez.
Koma Isco mun vera opinberuð í næstu viku þar sem félagið vill bíða aðeins með fregnirnar til að gefa komu Ancelotti og Zidane meiri tíma.
Perez talaði ekki um verð leikmannsins sem er talið nema á milli 25-30 milljónum evra.
Isco hefur verið lykilmaður Malaga síðustu tvö tímabil og var lykilmaður liðsins í Meistaradeild Evrópu þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall á þessu ári.

Heimild: Inside Spanish Football