26.06.13 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Slaven Bilic tekur við Besiktas (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Slaven Bilic hefur samþykkt að taka við tyrkneska félaginu Besiktas.
Bilic vakti athygli þegar hann þjálfaði landslið Króata frá 2006-2012 en síðasta vetur stýrði hann Lokomotiv Moskvu í Rússlandi.
Bilic hefur nú gert þriggja ára samning við Besiktas sem færir honum 4,7 milljónir evra.

Besiktas mun ekki fá að keppa í Evrópukeppni á næsta tímabili en liðið er í árs keppnisbanni hjá UEFA eftir hagræðingu úrslita í heimalandinu.
Heimild: Reuters