26.06.13 - 18:39
Ívan Guðjón Baldursson
Tevez kominn til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlos Tevez er orðinn leikmaður Juventus eftir að hafa verið keyptur til ítalska félagsins á tíu milljónir punda, sem verður að teljast virkilega lágt verð fyrir svo hæfan leikmann.
Tevez, sem er 29 ára, gat valið milli AC Milan og Juventus og telur sig hafa valið rétt félag.

,,Ég er mjög ánægður með að vera hjá Juve,\" sagði Tevez við Sky Sport Italia.
,,Þetta er mjög ánægjulegt fyrir mig. Ég mun svara öllum spurningum á fréttamannafundinum, en Juventus vildi mig meira heldur en Milan.\"
Tevez fær treyju númer 10 hjá Juventus og verður staðfestur sem leikmaður liðsins fimmtudaginn 27. júní.

Heimild: Sky Sports