Fotbolti.net
26.06.14 - 16:04
Daníel Freyr Jónsson

Ander Herrera orðinn leikmaður Man Utd (Staðfest)

Ander Herrera heldur á treyju United ásamt Bobby Charlton, fyrrum leikmanni United.

Ander Herrera heldur á treyju United ásamt Bobby Charlton, fyrrum leikmanni United.

Canon

Mynd: Manchester United

Manchester United hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Ander Herrera frá Athletic Bilbao.

Þetta var staðfest nú seinnipartinn, en Herrera skrifaði undir fjögurra ára samning á Old Trafford með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Kaupverðið nemur 36 milljónum evra, eða um 29 milljónum punda. Er hann fjórði dýrasti leikmaður í sögu United.
Eru þetta fyrstu kaup United í sumar og jafnframt er Herrera fyrsti leikmaðurinn sem United kaupir eftir að Louis Van Gaal var ráðinn sem stjóri félagsins.

Herrera hefur verið undir smásjá United undanfarin þrjú ár og reyndi United að kaupa hann síðasta sumar. Hann verður núna þrjiðji Spánverjinn í röðum United ásamt þeim David De Gea og Juan Mata.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.