26.06.14 - 20:59
Daníel Freyr Jónsson
Axel Óskar til Reading (Staðfest)

Axel Óskar Andrésson.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Axel Óskar Andrésson.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar
Varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur gert samning við enska championship-félagið Reading og gengur hann í raðir félagsins í næsta mánuði frá Aftureldingu.
Axel hefur farið áður til Reading til reynslu og nú mun hann ganga til liðs við unglingalið félagsins.
Axel Óskar er 16 ára gamall og þykir mjög efnilegur. Hann hefur leikið sjö leiki með Aftureldingu í 2. deildinni í sumar.

Þá hefur hann leikið 8 leiki með U-17 landsliði Íslands auk þess sem hann hefur verið lykilmaður í yngri liðum Aftureldingar undanfarin ár.
Hann mun leika sinn síðasta leik með Aftureldingu á morgun gegn Njarðvík í 2.deildinni áður hann heldur utan til að hefja æfingar með Reading.
Hann mun leika sinn síðasta leik með Aftureldingu á morgun gegn Njarðvík í 2.deildinni áður hann heldur utan til að hefja æfingar með Reading.
Heimild: Heimasíða Aftureldingar