Fotbolti.net
26.06.14 - 13:53
Elvar Geir Magnússon

Suarez í fjögurra mánaða bann (Staðfest)

Missir af níu deildarleikjum

Luis Suarez þarf að afplána enn eitt leikbannið.

Luis Suarez þarf að afplána enn eitt leikbannið.

Canon

Mynd: Getty Images

Fótbolti.net
FIFA hefur tilkynnt að Luis Suarez hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða bann frá fótbolta, gildir þetta um allar keppnir og þar af leiki Liverpool einnig. Auk þess fær hann níu leikja bann frá landsleikjum.

Meðan hann afplánar bannið má hann ekki einu sinni mæta á völlinn sem áhorfandi. Þá er hann sektaður um 65.800 pund.
Suarez beit varnarmanninn Giorgio Chiellini í 1-0 sigri Úrúgvæ gegn Ítalíu án þess að dómararnir sáu atvikið. Þetta er í þriðja sinn á atvinnumannaferlinum sem Suarez kemst í vandræði fyrir að bíta andstæðing en hann fékk tíu leikja bann í ensku úrvalsdeildinni 2012 eins og frægt er.

Eftir atvikið hafa margir stigið fram og heimtað þunga refsingu á Suarez. „Þessi hegðun er alls ekki ásættanleg. Ef ekki verður refsað fyrir þessa skammarlegu hegðun, hvaða skilaboð eru það til ungra krakka sem stunda íþróttina um allan heim?\" segir í undirskriftarsöfnun sem tugir þúsunda hafa skrifað undir.

Suarez mun missa af níu fyrstu deildarleikjum Liverpool á næsta tímabili, hans fyrsti leikur verður 1. nóvember gegn Newcastle. Hann missir af leikjum gegn Southampton, Man City, Tottenham, Aston Villa, West Ham, Everton, WBA, QPR og Hull. Þá missir hann af þremur leikjum í Meistaradeildinni.

Hinn virti blaðamaður Rob Harris skilgreinir dóminn á þann veg að þessa fjóra mánuði sem bannið gildir megi Suarez ekki æfa með Liverpool.

Eftir fjögurra mánaða bannið má hann spila æfingaleiki með Úrúgvæ en ljóst er að hann verður ekki með í Suður-Ameríku bikarnum á næsta ári.

Suarez er samkæmt dómnum bannaður frá öllum afskiptum af fótbolta en FIFA virðist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort félagaskipti myndu teljast til þess.

Luis Suarez og Úrúgvæ geta áfrýjað þessum dómi.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.