Slóvenska landsliðskonan Tjasa Tibaut hefur fengið leikheimild með Fylki í Pepsi Max-deildinni.
Tjasa er 31 árs gömul og spilar sem framherji.
Tjasa er 31 árs gömul og spilar sem framherji.
Tjasa hefur í gegnum tíðina raðað inn mörkum í úrvalsdeildinni í heimalandinu en hún spilaði síðast með Tavagnacco á Ítalíu.
Hún hefur einnig skorað sex mörk í 33 landsleikjum með Slóveníu á ferli sínum.
Fylkir er með sjö stig eftir þrjár umferðir í Pepsi Max-deildinni en liðið mætir Þór/KA í næsta leik á þriðjudag.
Draumaliðsdeild 50skills
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild 50skills. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir