Fotbolti.net
26.06.20 - 22:23
Ívan Guðjón Baldursson

Gunnar Jónas í Vestra að láni (Staðfest)

Gunnar Jónas í Vestra að láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Vestri

Gunnar Jónas Hauksson mun leika fyrir Vestra út tímabilið. Hann kemur að láni frá Gróttu en hann spilaði ellefu leiki fyrir Vestra í 2. deild í fyrra.
Hann lék einnig sex leiki með Gróttu í Inkasso-deildinni í fyrra og verður áhugavert að fylgjast með honum hjá Vestra.

Gunnar Jónas er miðjumaður fæddur 1999 og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Vestra.

„Gunnar spilaði stórt hlutverk hjá okkur á síðustu leiktíð þegar við tryggðum okkur upp og er þetta því mikið fagnaðarefni!" segir í yfirlýsingu frá Vestra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.