Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. júní 2022 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brebels farinn frá KA (Staðfest) - Óvíssa með Bykov
Oleksiy Bykov
Oleksiy Bykov
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA hafði betur gegn Fram í Mjólkurbikarnum í dag. Oleksiy Bykov var að vanda í byrjunarliðinu. Hann samdi við KA út júní mánuð. Þá var Sebastiaan Brebels ekki í hópnum í dag.


Í viðtali hjá Fótbolta.net staðfesti Arnar Grétarsson þjálfari KA að Brebels hafi þegar yfirgefið félagið. Þá er óvíst með framhaldið hjá Bykov.

„Við þurfum að sjá hvað er að gerast, hann samdi bara út júní. Ég held að hann sé að fara en ég veit ekki nákvæmlega, það er ekki staðfest," sagði Arnar.

Arnar vonast til að fá nýja leikmenn inn í glugganum í júlí.

„Brebels er líka farinn þannig að við þurfum að sjá, auðvitað er það stjórnin sem ákveður hvað þeir vilja gera en þjálfarar vilja alltaf fá góða leikmenn. Eins og staðan er núna erum við að missa tvo og ég vona innilega að við fáum eitthvað í staðinn."


Verður að koma í ljós hvort Jajalo spili fleiri leiki
Athugasemdir
banner
banner