Fotbolti.net
26.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Gengst undir læknisskoðun hjá Chelsea í dag

Gengst undir læknisskoðun hjá Chelsea í dag
Canon

Mynd: EPA

Ítalski varnarmaðurinn Marco Palestra mun gangast undir læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea í dag.
Chelsea gæti selt til City til að opna leiðina fyrir Palestra
TENGT EFNI

Chelsea gæti selt til City til að opna leiðina fyrir Palestra

Chelsea hefur náð samkomulagi við Atalanta um kaup á Palestra en kaupverðið er talið vera að minnsta kosti 43 milljónir punda.

Palestra er 21 árs gamall fjölhæfur hægri bakvörður sem var valinn varnarmaður ársins í Serie A á síðustu leiktíð.

Hann hefur náð samkomulagi við Chelsea um kaup og kjör og mun gangast undir læknisskoðun í dag áður en hann skrifar undir sex ára samning við Lundúnafélagið.

Palestra verður einn af fimm leikmönnum sem ganga formlega í raðir Chelsea í sumar. Geovany Quenda kemur frá Sporting en gengið var frá þeim kaupum á síðasta ári. Sama á við um Emanuel Emegha, sem kemur frá Strasbourg.

Þá koma brasilíski bakvörðurinn Denner frá Corinthians og Kasakinn Dastan Satpayev frá Kairat Almaty.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.