Fotbolti.net
26.07.13 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Halldór Geir í Völsung (Staðfest)

Völsungur fær liðsstyrk.

Völsungur fær liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur hefur fengið Halldór Geir Heiðarsson á láni frá Val út þetta tímabil.

Halldór Geir er uppalinn á Húsavík og hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Völsungs árið 2011.

Í sumar hefur Halldór nokkrum sinnum verið í leikmannahópi Vals en ekki komið við sögu. Hann hefur einnig leikið með öðrum flokki Vals.

Halldór mun nú leika með Völsungi út tímabilið en hans gamla félag er í botnsæti 1. deidlarinnar með einungis tvö stig.
Halldór verður klár í slaginn á morgun þegar Völsungur tekur á móti Tindastóli en búast má við mikilli stemningu á leiknum í kringum Mærudaga sem eru í gangi á Húsavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.