Fotbolti.net
26.07.13 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Jamie Mackie til Nottingham Forest (Staðfest)

Jamie Mackie til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest, sem leikur í ensku fyrstu deildinni, hefur fest kaup á Jamie Mackie frá QPR, en hann gerði þriggja ára samning við Forest í gær.
Mackie, sem er 27 ára gamall, gekk til lið við Forest í gær, en hann skilaði inn beiðni til QPR á fimmtudag þar sem hann fór fram á það að yfirgefa félagið.

Hann skoraði 18 mörk í 94 leikjum fyrir QPR, en hann kom frá Plymouth árið 2010. Hann byrjaði þá 17 af 38 leikjum QPR í ensku úrvalsdeildinni í fyrra, en ljóst er að þetta verður mikil blóðtaka fyrir félagið.

Forest borgaði 1 milljón punda fyrir Mackie, sem á níu landsleiki að baki fyrir skoska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.