26.07.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Keflavík og Njarðvík skipta á leikmönnum (Staðfest)

Ásgrímur Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ásgrímur Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Keflvíkingar hafa fengið miðjumanninn unga Jón Tómas Rúnarsson í sínar raðir frá Njarðvík.
Jón Tómas er á yngsta ári í öðrum flokki en hann hefur leikið sex leiki með Njarðvíkingum í 2. deildinni í sumar.

Bróðir hans, Ásgrímur Rúnarsson, hefur aftur á móti gengið til liðs við Njarðvík sem og Theodór Guðni Halldórsson.
Ásgrímur var í byrjunarliði Keflavíkur gegn FH um síðustu helgi en það er eini leikur hans með liðinu í sumar.
Theodór Guðni kom einnig við sögu hjá FH en hann og Ásgrímur munu nú leika með Njarðvík á láni út tímabilið.
Keflavík heimsækir KR í Pepsi-deildinni á sunnudag og Jón Tómas er löglegur fyrir þann leik.
Ásgrímur og Theodór geta báðir leikið með Njarðvík þegar liðið heimsækir Dalvík/Reyni á morgun.