26.07.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Marko Blagojevic í Magna (Staðfest)

Mynd: Hafþór - 640.is

Mynd: Hafþór - 640.is
Magni Grenivík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir síðari hluta sumars í 3. deildinni en varnarmaðurinn Marko Blagojevic er genginn í raðir félagsins.
Marko hætti hjá Völsungi á dögunum og hefur verið án félags síðan þá.

Marko var frábær þegar Völsungur sigraði aðra deildina í fyrra en hann var valinn í lið ársins sem þjálfarar og fyrirliðar deildarinnar völdu fyrir Fótbolta.net.
Samtals spilaði hann 32 leiki fyrir Völsung á einu og hálfu ári og skoraði fimm mörk. Hann spilaði áður með Víði í Garði árin 2008 og 2009.
Marko gæti leikið sinn fyrsta leik með Magna í kvöld þegar liðið heimsækir Grundarfjörð en þessi lið eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar.