Fotbolti.net
26.07.13 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Morgan De Sanctis til AS Roma (Staðfest)

Morgan De Sanctis í leik með Napoli

Morgan De Sanctis í leik með Napoli

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski markvörðurinn, Morgan De Sanctis, hefur gert tveggja ára samning við AS Roma, en hann kemur frá Napoli.
De Sanctis, sem er 36 ára gamall, hefur leikið með fjölmörgum liðum á ferlinum, en þar má nefna Pescara, Juventus, Udinese, Sevilla, Galatasaray og þá síðast Napoli.

Hann ákvað að segja skilið við Napoli í gær og samdi við Roma til næstu tveggja ára, en ljóst var að hann fengi lítið að spila hjá Napoli eftir að Jose Manuel Reina kom á lánssamning frá Liverpool á dögunum.

Roma sárvantaði markvörð eftir að félagið missti hollenska markvörðinn Maarten Stekelenburg til Fulham. Búist er við því að De Sanctis og Bogdan Lobont berjist um stöðuna í vetur hjá Rómverjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.