Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. júlí 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Salisu búinn að skrifa undir hjá Southampton
Mynd: Getty Images
Fréttamaðurinn virti Saddick Adams heldur því fram að miðvörðurinn Mohammed Salisu sé búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Southampton.

Salisu er 21 árs gamall og kemur frá Gana. Hann var sem klettur í vörninni hjá Real Valladolid á nýliðnu tímabili.

Kaupverðið er óuppgefið en talið nema 10 til 15 milljónum evra og mun Salisu fá 40 þúsund pund í vikulaun fyrir skatt.

Adams segir Southampton vera að bíða eftir réttri stundu til að staðfesta félagaskiptin.

Southampton hefur verið að spila vel að undanförnu og er ekki búið að tapa síðan í lok júní þrátt fyrir leiki gegn Man Utd og Man City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner