Fotbolti.net
26.07.22 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

Víkingur lánar Bjarka Björn í Kórdrengi (Staðfest)

Bjarki Björn Gunnarsson (t.h.) er farinn í Kórdrengi

Bjarki Björn Gunnarsson (t.h.) er farinn í Kórdrengi

Canon

Mynd: Víkingur R.

Kórdrengir hafa fengið leikmann rétt fyrir lok gluggalok en Bjarki Björn Gunnarsson mun spila með liðinu á láni frá Víkingi R. út þetta tímabil.
Bjarki Björn er 22 ára gamall uppalinn Víkingur en hann hefur eytt síðustu tveimur árum á láni hjá Þrótti V. og Haukum.

Hann spilaði 15 leiki í 2. deildinni með Þrótturum á síðasta tímabili og lék þá tvo deildarleiki með Haukum árið á undan.

Bjarki kom við sögu í einum leik með Víkingi í Lengjubikarnum gegn Fram í mars en hefur ekkert spilað með liðinu á þessu tímabili.

Þessi ágæti leikmaður mun klára tímabilið með Kórdrengjum en hann verður á láni frá Víkingi. Hann er samningsbundinn Víkingum út næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.