Fotbolti.net
26.08.20 - 16:14
Elvar Geir Magnússon

Ben Chilwell til Chelsea (Staðfest)

Chilwell skrifar undir.

Chilwell skrifar undir.

Canon

Mynd: Chelsea

Enski bakvörðurinn Ben Chilwell er genginn í raðir Chelsea frá Leicester en þetta var staðfest rétt í þessu.

Chilwell hefur gert fimm ára samning við Chelsea en félagið hefur verið hrikalega iðið við kolann á leikmannamarkaðnum í sumar.
„Ég er hæstánægður með að ganga í raðir Chelsea á þessum spennandi tímapunkti hjá félaginu. Ég er spenntur fyrir því að vera hluti af þessum unga og dínamíska leikmannahópi Frank Lampard og berjast um titla á næsta tímabili," segir Chilwell.

Chilwell er 23 ára vinstri bakvörður en hann lék sinn fyrsta leik fyrir Leicester 2015. Hann kemur upp úr akademíu félagsins.

Chelsea náði fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni og þar með Meistaradeildarsæti á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar, á kostnað Leicester.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.