Fotbolti.net
26.08.20 - 17:42
Victor Pálsson

Dean Henderson framlengdi við Manchester United (Staðfest)

Dean Henderson framlengdi við Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Dean Henderson hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United á Englandi.
Þetta var staðfest nú rétt í þessu en Henderson krotaði undir til ársins 2025 og er samningsbundinn næstu fimm árin.

Þessi öflugi markvörður hefur undanfarin tvö ár spilað með Sheffield United á láni við mjög góðan orðstír.

Fyrr í sumar staðfesti Henderson að hann myndi ekki spila annað tímabil með Sheffield og mun hann leika á Old Trafford á komandi tímabili.

Henderson mun berjast við David de Gea um byrjunarliðssæti en hann hefur lengi verið markvörður númer eitt. Þetta gæti þýtt að varamarkvörður síðasta árs, Sergio Romero, gæti verið á förum annað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.