Fotbolti.net
26.08.20 - 23:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristófer Ingi lánaður til PSV Eindhoven (Staðfest)

Kristófer skrifar undir.

Kristófer skrifar undir.

Canon

Mynd: Aðsend

Kristófer Ingi Kristinsson er genginn í raðir PSV Eindhoven í Hollandi frá Grenoble Foot í Frakklandi. Hann kemur á láni til PSV með möguleika á kapum síðar meir.
Kristófer fer í varalið PSV sem leikur í næst efstu deild í Hollandi.

Kristófer, sem er 21 árs gamall framherji, þekkir vel til í Hollandi en hann var áður fyrr á mála hjá Willem II. PSV er eitt stærsta félagið í Hollandi og er aðallið félagsins yfirleitt í baráttu um hollenska meistaratitilinn.

Kristófer Ingi er uppalinn í Garðabæ og lék með yngri flokkum Stjörnunnar.

Hann á að baki sex leiki með U-21 árs landsliði Íslands, en hann hefur einnig leikið með U19, U17, U16 og U15 landsliðinu.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Kristófer Kristinsson (Grenoble)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.