26.08.20 - 10:19
Elvar Geir Magnússon
Leiknir F. fær Izaro aftur frá Þór (Staðfest)

Izaro í leik með Leikni í fyrra.

Mynd: Daníel Þór Cekic

Izaro í leik með Leikni í fyrra.

Mynd: Daníel Þór Cekic
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið spænska kantmanninn Izaro Abella Sanchez aftur í sínar raðir frá Þór.
Izaro skoraði ellefu mörk þegar Leiknir vann 2. deildina í fyrra.
Þór fékk Izaro í sínar raðir í vetur en hann hefur skorað tvö mörk í tíu leikjum í Lengjudeildinni í sumar.
Izaro skoraði ellefu mörk þegar Leiknir vann 2. deildina í fyrra.
Þór fékk Izaro í sínar raðir í vetur en hann hefur skorað tvö mörk í tíu leikjum í Lengjudeildinni í sumar.
Izaro er nú farinn aftur á Fáskrúðsfjörð og hann mun leika með Leikni út tímabilið.
Leiknir er í 9. sæti í Lengjudeildinni í augnablikinu en næsti leikur liðsins er gegn botnliði Magna á heimavelli á laugardag.
Leiknir er í 9. sæti í Lengjudeildinni í augnablikinu en næsti leikur liðsins er gegn botnliði Magna á heimavelli á laugardag.

Izaro Abella Sanchez í leik með Þór

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
