Fotbolti.net
26.08.26 - 18:16
Brynjar Ingi Erluson

Arna og Fanney í góðri stöðu - Inter tapaði fyrir þýska stórveldinu

Fanney Inga hélt hreinu í sigri Vålerenga

Fanney Inga hélt hreinu í sigri Vålerenga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Norska liðið Vålerenga er komið með annan fótinn í næstu umferð í Evrópubikarnum eftir að liðið vann 2-0 sigur á slóvenska liðinu Radamlje í dag.
Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga. Þær stóðu vaktina í vörninni, héldu hreinu og komu liðinu í góða stöðu fyrir síðari leikinn sem fer fram í Noregi eftir viku.

Selma Sól Magnúsdóttir var ónotaður varamaður hjá Rosenborg sem tapaði fyrir úkraínska liðinu SeaSters Odesa, 1-0.

Í forkeppni Meistaradeildarinnar tapaði Inter fyrir fyrrum Evrópumeisturum Wolfsburg, 2-0, í Þýskalandi. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í marki Inter og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var einnig í byrjunarliðinu.

Síðari leikurinn fer fram í Mílanó en sigurvegarinn tryggir sér sæti í deildarkeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.