26.09.14 - 17:08
Elvar Geir Magnússon
Úlfur ráðinn áfram þjálfari Aftureldingar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Úlfur Arnar Jökulsson og Afturelding hafa gengið frá samkomulagi um að Úlfur veri nýr þjálfari meistaraflokks karla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Afturelding bjargaði sér naumlega frá falli úr 2. deildinni í sumar eftir að hafa verið spáð upp í 1. deildina fyrir mót.

Úlfur var aðstoðarþjálfari Atla Eðvaldssonar hjá Aftureldingu en tók við stjórnartaumunum þegar Atli var látinn fara. Hann stýrði Aftureldingu í síðustu sex leikjum tímabilsins og náði í eitt stig sem dugði liðinu til að halda sæti sínu í deildinni.
Úlfur hefur þjálfað yngri flokka Aftureldingar og mun einnig stýra 2. flokki félagsins áfram.
„Með það að leiðarljósi að halda áfram sterkri tengingu milli meistaraflokks karla og yngri flokka lýsir stjórn Aftureldingar yfir mikilli ánægju með skref Úlfs og undirstrikar stefnu félagsins að ungir og kraftmiklir knattspyrnumenn í vaxandi bæjarfélagi fái sem bestan stuðning til þess að ná markmiðum sínum í heimahögum,\" segir í tilkynningu Aftureldingar.